Sumardaginn fyrsta býður DíaMat í Húsdýragarðinn!
Fimmtudaginn 19. apríl milli kl. 10:00 og 10:20 borgar DíaMat aðgangseyrinn fyrir alla sem vilja vera með í díalektísku barnamessunni: Fyrst skoðum við dýrin til hádegis, síðan býður DíaMat upp á veitingar á kaffistofunni um kl. 12 og á meðan við snæðum, tölum við um dýrin, náttúruna og fólkið á plani sem hæfir þeim yngri.
Allir velkomnir sem eru hæfir til að vera nálægt börnum og dýrum.
Tuesday, April 17, 2018
Sunday, March 25, 2018
Miðvikudag: Díalektískar athafnir til umræðu í messu
Miðvikudaginn 28. mars klukkan 17:00 verður díalektísk messa í Friðarhúsi, Njálsgötu 87.
Vésteinn Valgarðsson, forstöðumaður félagsins, opnar umræður um innra starf félagsins, einkum það sem snýr að athöfnum á vegum þess: Skilyrði þeirra, inntak, form og annað.
Allir velkomnir, börn og fullorðnir.
Tuesday, March 20, 2018
Gleðileg jafndægur á vori
DíaMat óskar öllu mannkyni gleðilegra jafndægra á vori. Dagurinn í dag er ekki bara varða á leiðinni til sumars og sólar, heldur er hann líka táknrænn fyrir jöfnuð, því sólin skín jafnlengi á alla jarðarbúa, réttláta og rangláta.
Vonandi hafa líka allir átt uppbyggilegan 147 ára afmælisdag Parísarkommúnunnar á sunnudag.
Vonandi hafa líka allir átt uppbyggilegan 147 ára afmælisdag Parísarkommúnunnar á sunnudag.
Thursday, March 1, 2018
Af aðalfundi DíaMats 2018
DíaMat hélt
aðalfund í gær, 28. febrúar, í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105. Fundarstjóri var
forstöðumaður félagsins, Vésteinn Valgarðsson. Fundarritari var varaformaður félagsins,
Þorvaldur Þorvaldsson.
Forstöðumaður
flutti skýrslu stjórnar og rakti starf félagsins á liðnu starfsári.
Forstöðumaður
kynnti ársreikninga félagsins fyrir reikningsárið 2017. Voru þeir samþykktir og
verða sendir ríkisendurskoðun eins og þeir eru.
Samþykkt var samhljóða
lagabreytingartillaga frá öldungaráði, um að atkvæðisrétt á aðalfundi eigi
allir sem skráðir voru í félagið hjá Þjóðskrá Íslands 1. desember árið á undan
í stað 1. janúar sama ár.
Í stjórn voru endurkjörin
Claudia Overesch og Skúli Jón Unnarson. Stjórnin hefur þá öll endurnýjað umboð
sitt, en á öldungaráðsfundi í janúar voru Elín Helgadóttir, Vésteinn
Valgarðsson og Þorvaldur Þorvaldsson endurkjörin í stjórnina.
Félagslegir
skoðunarmenn reikninga voru endurkjörnir: Árni Daníel Júlíusson og Tinna
Þorvalds Önnudóttir.
Samþykkt var að
Claudia Overesch yrði tekin inn í öldungaráð.
Lóðarumsókn
félagsins var kynnt og rædd. Samþykkt að stjórn fylgi málinu áfram eftir.
Fjárhagsáætlun
var samþykkt, hlutfallslega óbreytt frá árinu á undan.
Ýmsar aðrar
hugmyndir um starf félagsins voru ræddar áður en fundi var slitið kl. 22:40.
Tuesday, February 27, 2018
Munið aðalfund á morgun
Aðalfundur DíaMats verður haldinn annað kvöld. Sjáumst!
DíaMat heldur árlegan aðalfund sinn miðvikudagskvöldið 28. febrúar næstkomandi. Hann verður haldinn í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105. Fyrst, kl. 19:30, er díalektísk messa, þar sem Ólafur Grétar Gunnarsson, fjölskyldu- og hjónaráðgjafi, kynnir bókina Að vita hvað konur vilja: Vísindalega sönnuð leyndarmál um samskipti kynjanna. Umræður.
Kl. 20:30 er aðalfundur settur. Dagskrá hans er skv. lögum félagsins. Ráðgert er að fundarstörfum verði lokið fyrir kl. 22:30. Á aðalfundi eiga atkvæðisrétt allir sem skráðir voru í félagið fyrir 1. janúar sl.
Monday, February 26, 2018
Ályktun gegn umskurði barna af trúar- eða hefðarástæðum
Stjórn DíaMats - félag um díalektíska efnishyggju styður bann við umskurði drengja ástæðum en læknisfræðilegum. Umskurður er óafturkræft og óþarft inngrip í líkamann, fyrir utan að valda miklum og óþörfum sársauka. Hagsmunir barnsins eiga að ganga fyrir; hefðir eða trúarkreddur réttlæta ekki þennan sið og það gerir trúfrelsi foreldranna ekki heldur, enda hefur barnið líka trúfrelsi. Þá má halda því til haga að trúfrelsi í landinu takmarkast meðal annars af því að ekki megi fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði. Að skera í smábörn gengur gegn góðu siðferði. Það er löngu tímabært að taka fyrir þennan forneskjulega sið með lögum.
Stjórn DíaMats - félags um díalektíska efnishyggju
22. febrúar 2018
Friday, February 16, 2018
Aðalfundur DíaMats verður 28. febrúar
DíaMat heldur árlegan aðalfund sinn miðvikudagskvöldið 28. febrúar næstkomandi. Hann verður haldinn í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105. Fyrst, kl. 19:30, er díalektísk messa, þar sem Ólafur Grétar Gunnarsson, fjölskyldu- og hjónaráðgjafi, kynnir bókina Að vita hvað konur vilja: Vísindalega sönnuð leyndarmál um samskipti kynjanna. Umræður.
Kl. 20:30 er aðalfundur settur. Dagskrá hans er skv. lögum félagsins. Ráðgert er að fundarstörfum verði lokið fyrir kl. 22:30. Á aðalfundi eiga atkvæðisrétt allir sem skráðir voru í félagið fyrir 1. janúar sl.
Kl. 20:30 er aðalfundur settur. Dagskrá hans er skv. lögum félagsins. Ráðgert er að fundarstörfum verði lokið fyrir kl. 22:30. Á aðalfundi eiga atkvæðisrétt allir sem skráðir voru í félagið fyrir 1. janúar sl.
Subscribe to:
Posts (Atom)