Styrktarsjóður DíaMats er fjármagnaður samkvæmt ákvörðunum
aðalfundar um föst framlög á fjárhagsáætlun og stjórnar um önnur framlög. Þá
þiggur sjóðurinn sérstök framlög sem eru sérstaklega ætluð honum. Stjórn
DíaMats er stjórn styrktarsjóðs.
Tilgangur styrktarsjóðsins er að styrkja þjóðþrifamál og að veita félagsmönnum persónulegan stuðning. Þjóðþrifamál sem sjóðurinn styrkir eru annars vegar starf félaga sem valdeflir alþýðufólk, annað hvort til að verða hæfara til að starfa saman að hagsmunum alþýðunnar og/eða til að gera fólk hæfara til að þola erfitt líf í þjóðfélagi þar sem hagsmunir alþýðunnar eru afgangsstærð.

Hins vegar styrkir sjóðurinn fræðistörf og útgáfu sem styður
frelsisbaráttu alþýðunnar: efni sem gerir beint gagn í baráttunni í dag; efni
sem gerir baráttu fyrri tíma skil, svo nútímafólk geti lært af henni og efni
sem gerir alþýðufólk hæfara í barnauppeldi og farsælu fjölskyldulífi.
Að öðru jöfnu skal láta ganga fyrir verkefni sem styrkur
mundi gera möguleg.