Friday, April 12, 2019
Ráðstefna Siðmenntar 1. júní
Þann 1. júní nk. heldur Siðmennt ráðstefnu um siðfræði 21. aldar. Stjórn DíaMats hefur samþykkt að ef skráðir félagar í DíaMat hafa áhuga á að sækja ráðstefnuna, geti þeir sótt um styrk frá félaginu fyrir hálfu þátttökugjaldinu. Skoðið heimasíðuna og vitið hvort þið hafið áhuga. Hafið samband við okkur ef þið eruð félagar og viljið sækja um styrk.
Wednesday, April 3, 2019
Díalektísk stund: Málefni flóttafólks
Þriðjudagskvöldið
9. apríl kemur Sema Erla Serdar á okkar fund og segir frá starfi Solaris,
hjálparsamtaka fyrir flóttafólk og hælisleitendur á Íslandi, í díalektískri
stund í Friðarhúsi, Njálsgötu 87. Umræður.
Allir velkomnir
sem koma með friði. Kaffiveitingar.
Thursday, March 28, 2019
Skilyrði fyrir umboði frá DíaMat til hjónavígsluathafna
Forstöðumaður
DíaMats er handhafi opinbers umboðs til þess að gefa saman hjón. Hann getur
framselt vald sitt til athafnastjóra og athafnamanna, og til einstakra
vígsluathafna.
Til að fá stöðu athafnastjóra
eða athafnamanns hjá DíaMat þarf maður að hafa verið skráður í félagið 1.
desember árið á undan. Maður þarf að hafa þekkingu á díalektískri og sögulegri
efnishyggju og maður þarf að þekkja vel lög og reglugerðir um hjónavígslur á
vegum skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga. Maður þarf að þekkja samþykktir
DíaMats um athafnir. Stjórn skal halda undirbúningsnámskeið eða leshringi til
að undirbúa umsækjendur um hlutverk athafnastjóra eða athafnamanns.
Stjórn þarf að
samþykkja einróma skipunarbréf athafnastjóra eða athafnamanns áður en
forstöðumaður veitir honum umboð til vígsluathafna. Umboð athafnastjóra gildir
ótímabundið. Umboð athafnamanns gildi í eitt ár. Umboð athafnastjóra og
athafnamanna falla niður ef þeir skrá sig úr félaginu. Stjórn getur svipt
athafnamenn eða athafnastjóra umboði sínu ef þeir bregðast trausti félagsins,
misfara með umboð sitt eða fylgja ekki reglum félagsins.
Allar athafnir
félagsins standa félagsmönnum til boða að kostnaðarlausu. Fyrir hjónavígslu
fólks sem er ekki í félaginu rukkar félagið 30.000 krónur. Sé annað hjónaefna í
félaginu þegar athöfn fer fram en hitt ekki, rukkar félagið hálft gjald. Af
gjaldinu skal vígslumaður fá 2/3 í þóknun fyrir vinnu sína.
Athafnir
félagsins standa öllum til boða, óháð lífsskoðunum, kynhneigð eða annarri
stöðu, svo fremi að lög leyfi hjúskapinn.
Umboð til stakrar
athafnar
Forstöðumaður
DíaMats getur veitt áhugasömum umboð til að framkvæma staka athöfn og er það þá
sérstaklega tilgreint í skriflegu umboði. Til að fá slíkt umboð þarf umsækjandi
að útskýra hvers vegna hann vilji fá vígslurétt og hvers vegna hann vilji fá
hann hjá DíaMat en ekki hjá einhverjum öðrum. Félagið tekur sama gjald fyrir
slíka athöfn eins og fyrir athöfn sem fulltrúi félagsins sjálfs heldur, eða
15.000 kr. fyrir hvert hjónaefni sem er utan félagsins.
Fyrir umboð til
stakrar athafnar telur félagið 10.000 króna þóknun.
Samþykkt af stjórn DíaMats 13. mars 2019
Wednesday, March 20, 2019
Gleðileg jafndægur á vori!
Gleðileg jafndægur á voru, kæru jarðarbúar. Í dag er annar tveggja daga á árinu þar sem sólin skín jafnt á okkur öll.
Wednesday, March 6, 2019
8. mars á föstudag -- og díalektísk stund næsta þriðjudag
Á föstudag, 8. mars, er fundur í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti í Gamla bíói klukkan 17. DíaMat er einn af aðstandendum fundarins, en 8. mars er einn af þeim dögum sem við höfum í heiðri. Vonandi sjáumst við þar!
- - - - - -
Einar Kári Jóhannsson kemur á fund DíaMats í Friðarhúsi þriðjudagskvöldið 12. mars kl. 20 og les kafla úr "Undir fána lýðveldisins" eftir Hallgrím Hallgrímsson, endurminningar úr spánsku borgarastyrjöldinni.
Einar og félagar hans í Unu útgáfuhúsi voru að endurútgefa bókina, en DíaMat styrkti útgáfuna.
Hægt verður að kaupa bókina sjálfa á staðnum.
- - - - - -
Einar Kári Jóhannsson kemur á fund DíaMats í Friðarhúsi þriðjudagskvöldið 12. mars kl. 20 og les kafla úr "Undir fána lýðveldisins" eftir Hallgrím Hallgrímsson, endurminningar úr spánsku borgarastyrjöldinni.
Einar og félagar hans í Unu útgáfuhúsi voru að endurútgefa bókina, en DíaMat styrkti útgáfuna.
Hægt verður að kaupa bókina sjálfa á staðnum.
Tuesday, March 5, 2019
DíaMat á Facebook
Það eru meira og minna öll félög á Facebook núorðið. DíaMat lætur ekki sitt eftir liggja. Þið getið fundið like-síðuna okkar undir nafninu "Díamat" og við erum líka með hóp sem heitir "DíaMat - félag um díalektíska efnishyggju" -- verið velkomin!
Wednesday, February 27, 2019
Subscribe to:
Posts (Atom)