UM HJÓNAVÍGSLUR

Athafnir DíaMats, þar á meðal hjónavígslur, standa félagsmönnum til boða að kostnaðarlausu. DíaMat setur enga fyrirvara við hjónavígslur, aðra en þá sem lög og reglugerðir landsins setja.
Ef hvorugt hjónaefni er í DíaMat kostar hjónavígsla á vegum félagsins 80.000 krónur.
Ef annað hjónaefna er í DíaMat en hitt ekki, kostar hjónavígsla á vegum félagsins 40.000 krónur.


Nánari upplýsingar í stjórnarsamþykkt DíaMats:

Skilyrði fyrir umboði frá DíaMat til hjónavígsluathafna
Forstöðumaður DíaMats er handhafi opinbers umboðs til þess að gefa saman hjón. Hann getur framselt vald sitt til athafnastjóra og athafnamanna, og til einstakra vígsluathafna.

Til að fá stöðu athafnastjóra eða athafnamanns hjá DíaMat þarf maður að hafa verið skráður í félagið 1. desember árið á undan. Maður þarf að hafa þekkingu á díalektískri og sögulegri efnishyggju og maður þarf að þekkja vel lög og reglugerðir um hjónavígslur á vegum skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga. Maður þarf að þekkja samþykktir DíaMats um athafnir. Stjórn skal halda undirbúningsnámskeið eða leshringi til að undirbúa umsækjendur um hlutverk athafnastjóra eða athafnamanns.

Stjórn þarf að samþykkja einróma skipunarbréf athafnastjóra eða athafnamanns áður en forstöðumaður veitir honum umboð til vígsluathafna. Umboð athafnastjóra gildir ótímabundið. Umboð athafnamanns gildi í eitt ár. Umboð athafnastjóra og athafnamanna falla niður ef þeir skrá sig úr félaginu. Stjórn getur svipt athafnamenn eða athafnastjóra umboði sínu ef þeir bregðast trausti félagsins, misfara með umboð sitt eða fylgja ekki reglum félagsins.

Allar athafnir félagsins standa félagsmönnum til boða að kostnaðarlausu. Fyrir hjónavígslu fólks sem er ekki í félaginu rukkar félagið 80.000 krónur. Sé annað hjónaefna í félaginu þegar athöfn fer fram en hitt ekki, rukkar félagið hálft gjald.

Athafnir félagsins standa öllum til boða, óháð lífsskoðunum, kynhneigð eða annarri stöðu, svo fremi að lög leyfi hjúskapinn.

Umboð til stakrar athafnar
Forstöðumaður DíaMats getur veitt áhugasömum umboð til að framkvæma staka athöfn og er það þá sérstaklega tilgreint í skriflegu umboði. Til að fá slíkt umboð þarf umsækjandi að útskýra hvers vegna hann vilji fá vígslurétt og hvers vegna hann vilji fá hann hjá DíaMat en ekki hjá einhverjum öðrum. Félagið tekur sama gjald fyrir slíka athöfn eins og fyrir athöfn sem fulltrúi félagsins sjálfs heldur, eða 40.000 kr. fyrir hvert hjónaefni sem er utan félagsins.


Fyrir umboð til stakrar athafnar telur félagið 10.000 króna þóknun.

Samþykkt af stjórn DíaMats 4. febrúar 2024